Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 01. nóvember 2014 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Arsenalklúbburinn býður langveikum á Arsenal - Burnley
Mynd: Arsenalklúbburinn
Arsenalklúbburinn á Íslandi í samstarfi við Gaman Ferðir munu bjóða tveimur langveikum strákum, þeim Jóni Aðalsteini og Ragnari Axel, á leik Arsenal og Burnley í dag.

Arsenalklúbburinn og Gaman Ferðir leggja til flug til London, hótel í þrjár nætur og miða á leikinn fyrir strákana og forráðamenn þeirra sem og húfu merkta leik og dagsetningu.

Velunnarar Arsenalklúbbsins sem og Áfangar ehf. í Reykjanesbæ og Rafholt ehf. í Kópavogi sjá til þess að strákarnir séu með gjaldeyri, sitthvor 150 pundin. Inter Sport á Íslandi gaf hópnum svo búninga á þau öll fjögur þegar þau hittust á fimmtudaginn.

Þetta verður vonandi ógleymanleg ferð fyrir strákana en hún mun innihalda meðal annars skoðunarferð um völlinn, hitta leikmenn þegar þeir koma á völlinn fyrir leik, leikurinn sjálfur og svo sérstök skoðunarferð um leikfangaverslunina Hamleys á sunnudeginum.

,,Arsenalklúbburinn vill þakka öllum sem komu að gjöfum og aðstoð og þá sérstaklega Gaman Ferðir fyrir að gera þessa ferð að veruleika," segir í tilkynningu.
Athugasemdir
banner
banner
banner