Spænski miðjumaðurinn David Silva leikur í kvöld sinn fyrsta byrjunarliðsleik fyrir Manchester City í tæplega tvo mánuði en hann hefur jafnað sig eftir meiðsli.
Manchester City stillir upp sterku liði gegn Hull í 8-liða úrslitum deildabikarins en leikurinn hefst klukkan 19:45.
Manchester City stillir upp sterku liði gegn Hull í 8-liða úrslitum deildabikarins en leikurinn hefst klukkan 19:45.
Hull féll úr ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili og er sem stendur í 4. sæti B-deildarinnar.
Tveir aðrir leikir verða í 8-liða úrslitum deildabikarsins í kvöld en fylgst verður með gangi mála í þeim í úrslitaþjónustu á forsíðu.
Byrjunarlið Man City: Caballero, Sagna, Otamendi, Mangala, Clichy, Delph, Fernandinho, Navas, Silva, De Bruyne, Bony.
Byrjunarlið Hull: Jakupovic, Odubajo, Bruce, Taylor, Maguire, Livermore, Akpom, Hayden, Aluko, Robertson, Elmohamady.
Leikir kvöldsins:
19:45 Man City - Hull City (Stöð 2 Sport og Sport 2)
19:45 Middlesbrough - Everton (Stöð 2 Sport 3)
19:45 Stoke City - Sheffield Wednesday
Athugasemdir