Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   þri 01. desember 2015 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
Fellaini skoraði og lagði upp fyrir U21 gegn Liverpool
Mynd: Getty Images
U21 árs lið Manchester United lagði U21 lið Liverpool að velli í gærkvöldi og var belgíski miðjumaðurinn Marouane Fellaini í aðalhlutverki.

Fellaini átti góðan leik og kom United yfir áður en hann lagði upp annað mark leiksins fyrir Nick Powell.

Jerome Sinclair og Toni Gomes jöfnuðu fyrir Liverpool á 82. og 85. mínútu leiksins en það var Sean Goss sem gerði sigurmarkið á 89. mínútu.

Fellaini hefur ekki fengið að spila mikið fyrir Man Utd á tímabilinu en gerði vel að skora í sínum fyrsta leik með U21 liðinu.

U21 lið Liverpool er á botni efstu deildar unglingaliða Englands með fimm stig eftir átta leiki. U21 lið Man Utd er með tíu stig eftir fimm leiki en topplið deildarinnar er U21 lið Sunderland.

Sergio Romero spilaði einnig í leiknum og gerði mistök sem gerðu Liverpool kleift að jafna á lokakafla leiksins.
Athugasemdir
banner
banner
banner