Nantes 0 - 0 Lyon
Nantes, með Kolbein Sigþórsson í broddi fylkingar, gerði í kvöld markalaust jafntefli gegn Lyon í frönsku úrvalsdeildinni.
Kolbeinn byrjaði á bekknum en kom inná á 68.mínútu en hann náði ekki að setja mark sitt á leikinn.
Stigið verður að teljast nokkuð gott fyrir Nantes þar sem Lyon var í fjórða sæti fyrir leikinn og Nantes um miðja deild.
Nantes er nú í tíunda sæti, með 21 stig eftir 16 umferðir.