Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 01. desember 2015 13:30
Magnús Már Einarsson
Koscielny með um helgina?
Lítið meiddur.
Lítið meiddur.
Mynd: Getty Images
Arsenal hefur fengið góðar fréttir af varnarmanninum Laurent Koscielny.

Koscielny meiddist á mjöðm gegn Norwich í fyrradag og varð að fara af velli.

Samkvæmt frétt Sky Sports eru meiðslin ekki alvarleg og Koscielny gæti náð leiknum gegn Sunderland á laugardag.

Alexis Sanchez og Santi Cazorla meiddust einnig gegn Norwich og meiri óvissa er með þá félaga.

Möguleiki er að þeir missi af leiknum mikilvæga gegn Olympiakos í Meistaradeildinni í næstu viku en það er úrsltaleikur um sæti í 16-liða úrslitunum.
Athugasemdir
banner
banner
banner