Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 01. desember 2015 20:30
Jóhann Ingi Hafþórsson
PSG tókst ekki að brjóta Angers niður
Zlatan tókst ekki að skora frekar en öðrum í kvöld.
Zlatan tókst ekki að skora frekar en öðrum í kvöld.
Mynd: Getty Images
PSG er með afar gott forskot í frönsku úrvalsdeildinni og eru taplausir.

Fyrir heimsóknina til Angers í dag hafði liðið unnið 13 af fyrstu 15 leikjum sínum og gert tvö jafntefli, nú eru þau hins vegar orðin þrjú eftir markalaust jafntefli.

Angers er í þriðja sæti deildarinnar og hafa komið mikið á óvart en úrslitin voru sanngjörn í leik þar sem Angers liðið varðist mjög vel.

Zlatan Ibrahimovic byrjaði á bekknum í dag en hann kom inná þegar 18 mínútur voru eftir.

PSG er þrátt fyrir jafnteflið með 14 stiga forskot á toppi deildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner