Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   þri 01. desember 2015 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn í dag - Atletico Madrid og Granada eiga útileiki
Mynd: Getty Images
Það eru tveir leikir á dagskrá í spænska bikarnum í kvöld þar sem efstudeildarlið Atletico Madrid og Granada eiga útileiki gegn neðrideildaliðum.

Atletico, sem er í öðru sæti spænsku efstu deildarinnar, heimsækir topplið riðils 3 í C-deildinni, Reus Deportiu.

Klukkutíma eftir upphafsflautið í leik Atletico hefst viðureign Leganes og Granada.

Leganes er um miðja B-deild á Spáni á meðan Granada er í fallbaráttu efstu deildarinnar.

Fyrri viðureignir liðanna eru í kvöld en þau mætast öll aftur fimmtudaginn 17. desember.

Leikir kvöldsins:
19:00 Reus Deportiu - Atletico Madrid
20:00 Leganes - Granada
Athugasemdir
banner