Jackson, Conte, Robertson, Alisson, Simons, Bernardo Silva og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fös 02. janúar 2015 13:30
Magnús Már Einarsson
Viðar gæti farið frá Valerenga í þessum mánuði
Viðar Örn Kjartansson.
Viðar Örn Kjartansson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Viðar Örn Kjartansson, framherji Valerenga, mun mögulega róa á önnur mið í þessum mánuði.

Viðar Örn varð markakóngur á sínu fyrsta tímabili í Noregi og fjölmörg félög hafa sýnt honum áhuga.

Eins og kom fram á Fótbolta.net hefur Viðar verið orðaður við AEK Aþenu í grískum fjölmiðlum. Ólafur Garðarsson, umboðsmaður Viðars, staðfestir að AEK hafi sýnt honum áhuga.

,,Þeir eru einn af þeim klúbbum sem hafa verið að spá og spekúlera. Það er margt annað í gangi sem ég get ekki sagt frá alveg eins og er," sagði Ólafur við Fótbolta.net í dag.

Ólafur segir að ágætis líkur séu á að Viðar fari frá Valerenga í þessum mánuði.

,,Það er ekki ólíklegt að eitthvað gerist í janúar þó að sumarglugginn sé yfirleitt aktívari."

Sjá einnig:
Viðar Örn til Grikklands
Ítarlegt viðtal við Viðar frá því í nóvember
Slapp
banner
banner