Manchester City 3 - 1 Watford
1-0 Raheem Sterling ('1)
2-0 Christian Kabasele ('13, sjálfsmark)
3-0 Sergio Aguero ('63)
3-1 Andre Gray ('82)
1-0 Raheem Sterling ('1)
2-0 Christian Kabasele ('13, sjálfsmark)
3-0 Sergio Aguero ('63)
3-1 Andre Gray ('82)
Manchester City vélin er komin aftur í gang eftir smá hökt í markalausu jafntefli gegn Crystal Palace í síðustu umferð.
Raheem Sterling skoraði eftir rétt rúmlega hálfa mínútu gegn Watford í dag og tvöfaldaði Christian Kabasele forystuna með sjálfsmarki eftir fyrirgjöf sem var á leið til Sergio Aguero.
Aguero bætti þriðja markinu við í síðari hálfleik áður en Andre Gray minnkaði muninn.
Man City er með fimmtán stiga forystu á toppi deildarinnar og er afar nálægt því að skora þrjú mörk á leik að meðaltali.
Watford er um miðja deild þrátt fyrir frábæra byrjun á tímabilinu, aðeins fimm stigum frá fallsvæðinu.
Athugasemdir