Umboðsmaður miðjumannsins Leon Goretzka hjá Schalke segir ekki rétt að hann sé búinn að semja við Bayern Munchen.
Hinn 22 ára gamli Goretzka verður samningslaus í sumar og orðrómur hefur verið um að hann gangi þá í raðir Bayern.
Hinn 22 ára gamli Goretzka verður samningslaus í sumar og orðrómur hefur verið um að hann gangi þá í raðir Bayern.
Goretzka hefur einnig verið orðaður við Real Madrid, Barcelona og Liverpool undanfarnar vikur.
Jorg Neubauer, umboðsmaður Goretzka, segir að engin ákvörðun liggi fyrir.
„Þegar að búið verður að taka ákvörðun þá mun ég ásamt Leon fyrst segja Schalke frá því," sagði Neubauer.
Athugasemdir