Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   þri 02. janúar 2018 22:47
Ívan Guðjón Baldursson
Hodgson: Dann og Puncheon frá út tímabilið
Mynd: Getty Images
Roy Hodgson var stoltur af sínum mönnum eftir mikilvægan sigur gegn Southampton í fallbaráttunni fyrr í kvöld.

Shane Long kom heimamönnum í Southampton yfir snemma leiks en James McArthur og Luka Milivojevic sneru þessu við fyrir gestina.

Hodgson var þó ekki aðeins með góðar fregnir að leikslokum, því tveir öflugir leikmenn liðsins, Scott Dann og Jason Puncheon, verða frá út tímabilið.

„Dann og Puncheon eru báðir búnir að skaða krossband og verða frá út tímabilið. Þeir eru báðir hjá sérfræðingi vegna meiðslanna og þurfa líklega að fara í aðgerð. Þeir spila ekki meira á þessu tímabili og gætu misst af byrjun næsta tímabils," sagði Hodgson eftir sigurinn.

„Strákarnir eiga mikið hrós skilið fyrir að skila inn fjórum stigum á þremur dögum. Við spiluðum á erfiðum og votum útivelli og ég gæti ekki verið stoltari af strákunum.

„Við erum bara búnir að tapa einum leik af síðustu ellefu sem er frábært í fallbaráttunni."

Athugasemdir
banner
banner
banner