þri 02. janúar 2018 15:00
Magnús Már Einarsson
Kvennalandsliðið mætir Noregi á La Manga
Mynd: Fotbolti.net - Anna Þonn
A landslið kvenna leikur vináttuleik gegn Noregi þann 23. janúar, en leikurinn fer fram á La Manga á Spáni.

Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari A kvenna, mun tilkynna hópinn sem fer í verkefnið á fimmtudaginn næstkomandi.

Þetta er í 15. sinn sem liðin mætast, Noregur hefur unnið átta leiki, Ísland þrjá og þrír hafa endað með jafntefli. Ísland hefur skorað 18 mörk í leikjum milli liðanna, en Noregur 30.

Ísland fer síðan á Algarve mótið í Portúgal í lok febrúar og í apríl eru framundan leikir gegn Slóveníu og Færeyjum í undankeppni HM.
Athugasemdir
banner
banner
banner