Landsliðsmarkvörðurinn Hannes Þór Halldórsson gekk í það heilaga á næst síðasta degi ársins. Hann og Halla Jónsdóttir eru orðin hjón en þau hafa verið saman í mörg ár.
Veislan var haldin á Korpúlfsstöðum og mátti sjá þar þekkt andlit úr boltanum og víðar úr samfélaginu.
Veislan var haldin á Korpúlfsstöðum og mátti sjá þar þekkt andlit úr boltanum og víðar úr samfélaginu.
Meðal viðstaddra voru liðsfélagar Hannesar í landsliðinu; Birkir Már Sævarsson, Kolbeinn Sigþórsson, Theodór Elmar Bjarnason, Eiður Smári Guðjohnsen, Rúrik Gíslason, Ragnar Sigurðsson, Ólafur Ingi Skúlason, Gunnleifur Gunnleifsson, Ögmundur Kristinsson og Kjartan Henry Finnbogason.
Það er annað stórt ár farið af stað hjá Hannesi en hann mun að öllum líkindum standa í rammanum á HM í Rússlandi. Hann hefur verið lykilmaður í ótrúlegum árangri íslenska liðsins undanfarin ár.
Hér að neðan má sjá brot af þeim myndum frá stóra deginum sem birtar voru á Instagram með kassamerkinu #Hannesoghalla.
Athugasemdir