banner
   þri 02. janúar 2018 17:30
Elvar Geir Magnússon
Naby Keita ekki væntanlegur til Liverpool í janúar
Keita er 22 ára.
Keita er 22 ára.
Mynd: Getty Images
Útlit er fyrir að Naby Keita verði hjá RB Leipzig út tímabilið en framkvæmdastjóri þýska félagsins segir að leikmaðurinn sé ekki á förum til Liverpool strax.

Liverpool er búið að ganga frá kaupum á Keita en hann er ekki væntanlegur á Anfield fyrr en í sumar.

Vangaveltur hafa verið uppi um að sölunni gæti verið flýtt þar sem framtíð Philippe Coutinho er óljós.

Framkvæmdastjórinn Oliver Mintzlaff segir þó engar viðræður hafa átt sér stað um að Keita fari til Liverpool í janúar.

„Hvorki Naby né hans menn hafa lýst því yfir að hann vilji yfirgefa félagið í janúar. Það eru samningar og þar segir að starf hans í Liverpool hefjist 1. júlí," segir Mintzlaff.

Keita hefur skorað tvö mörk í þrettán leikjum fyrir Leipzig í þýsku deildinni en liðið hikstaði í síðustu leikjum fyrir vetrarfrí og er í fimmta sæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner