Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 02. janúar 2018 10:00
Magnús Már Einarsson
Salah og Mane sofa í flugvél nóttina fyrir leik
Mane gæti spilað gegn Everton á föstudaginn eftir svefn í einkaflugvél nóttina fyrir leik.
Mane gæti spilað gegn Everton á föstudaginn eftir svefn í einkaflugvél nóttina fyrir leik.
Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, hefur staðfest að Sadio Mane og Mohamed Salah verða báðir staddir í Gana á fimmtudaginn, daginn fyrir leikinn gegn Everton í enska bikarnum.

Mane og Salah verða þar viðstaddir verðlaunaafhendingu fyrir knattspyrnumann ársins í Afríku en þeir eru tilnefndir þar ásamt Pierre-Emerick Aubameyang.

Salah var ekki með Liverpool gegn Burnley í gær vegna meiðsla á nára og ólíklegt er að hann verði klár á föstudaginn. Mane gæti hins vegar spilað en hann og Salah fljúga heim í einkaþotu eftir verðlaunaafhendinguna á fimmtudagskvöld.

„Það er búið að skipuleggja allt. Við erum með tvo af þremur bestu afrísku leikmönnunum í hópnum. Við verðum að sýna þeim virðingu," sagði Jurgen Klopp, stjóri Liverpool.

„Ef þetta hefði verið á leikdegi þá hefðu þeir ekki beðið um þetta. Við sofum á hóteli fyrir leikinn á meðan þeir sofa í flugvél. Það er eini munurinn."
Athugasemdir
banner
banner