Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
banner
   þri 02. janúar 2018 18:00
Magnús Már Einarsson
Vill fá svör frá Mahrez um framtíðina
Mynd: Getty Images
Claude Puel, stjóri Leicester, vill að Riyad Mahrez taki ákvörðun um framtíð sína sem fyrst.

Mahrez skoraði og lagði upp mark í 3-0 sigri á Huddersfield í gær en líkt og í sumar eru sögusagnir í gangi um framtíð hans hjá félaginu.

Puel vill alls ekki missa Mahrez en hann vill fá svör frá leikmanninum sjálfum um það hvort hann vilji fara.

„Við munum spyrja hann spurninga," sagði Puel eftir leikinn í gær.

„Þetta var stórkostlegur leikur hjá Riyad. Ég kann vel við hann sem leikmann og við viljum halda okkar bestu leikmönnum."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner