Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 02. janúar 2018 13:00
Magnús Már Einarsson
Wenger blæs á sögur um David Luiz og Lemar
David Luiz.
David Luiz.
Mynd: Getty Images
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, hefur blásið á sögusagnir þess efnis að hann ætli að bjóða í David Luiz hjá Chelsea og Thomas Lemar hjá Mónakó í þessum mánuði.

Luiz er ekki í myndinni hjá Chelsea en hann hefur verið orðaður við Arsenal líkt og Lemar sem hafnaði enska félaginu síðastliðið sumar.

„Ég vil ekki tala um sérstök nöfn en þessar fréttir eru rangar," sagði Wenger á fréttamannafundi í dag.

Alexis Sanchez, Mesut Özil og Alexis Sanchez verða samningslausir í sumar en engin tilboð hafa komið í þá núna í byrjun janúar gluggans.

„Það hefur enginn haft samband við okkur," sagði Wenger aðspurður út í þá þrjá.
Athugasemdir
banner
banner
banner