Búið er að opinbera að Adam Johnson er leikmaðurinn sem handtekinn var fyrir að stunda kynlíf með 15 ára stúlku.
Lögreglan rannsakaði hús Johnson í morgun en hann á hús sem er metið á 1,8 milljón punda.
Í húsinu fannst meðal annars hlaðin byssa sem lögregla gerði upptæka.
Adam Johnson leikur fyrir Sunderland en hann er fyrrum leikmaður Middlesbrough og Manchester City. Hann á 12 leiki að baki fyrir enska landsliðið.
Uppfært: Nú tala fjölmiðlar um að stelpan sé 15 ára en samkvæmt fyrstu fréttum var hún sögð 14 ára.
Athugasemdir