Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 02. mars 2015 14:00
Elvar Geir Magnússon
Bony: Þurfum að vinna alla leikina sem eru eftir
Wilfried Bony og Frank Lampard.
Wilfried Bony og Frank Lampard.
Mynd: Getty Images
Wilfried Bony, sóknarmaður Manchester City, telur að meistararnir þurfi að stefna á að vinna alla deildarleikina sem eftir eru til að ná að verja titilinn. City tapaði fyrir Liverpool í gær og er enn fimm stigum á eftir toppliði Chelsea.

„Þetta eru mikil vonbrigði. Við erum búnir að gera þetta ansi erfitt fyrir okkur núna. Ef Chelsea vinnur leikinn sem liðið á inni þá verður enn erfiðara fyrir okkur að ná þeim. En við höldum í vonina," segir Bony.

„Það eru ellefu leikir eftir og við verðum að vinna þá alla og vonast til þess að Chelsea missi af einhverjum stigum. Þetta verður erfitt en við verðum að trúa."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner