Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 02. mars 2015 10:32
Magnús Már Einarsson
Börn John Terry fengu að sofa með deildabikarinn
Mynd: Instagram
John Terry leiddi Chelsea til sigurs í enska deildabikarnum í gærkvöldi.

Terry skoraði fyrra markið í 2-0 sigrinum á Tottenham og var valinn maður leiksins.

Fyrirliðinn tók síðan bikarinn með sér heim eftir leikinn á Wembley.

Börn Terry fengu að sofa með bikarinn eins og sjá má á þessari mynd sem hann birti á Instagram í gærkvöldi.

Sonur Terry fékk einnig að sofa með gull medalíuna en hann svaf að sjálfsögðu í Chelsea treyju.
Athugasemdir
banner
banner
banner