Mauricio Pochettino, stjóri Tottenham, segist vera stoltur af sínum mönnum þrátt fyrir 2-0 tap gegn Chelsea í úrslitaleik enska deildabikarsins í gær.
Tottenham átti fínan fyrri hálfleik en lenti undir rétt fyrir leikhlé og staðan var svo orðin 2-0 eftir tíu mínútur í seinni hálfleik.
Tottenham átti fínan fyrri hálfleik en lenti undir rétt fyrir leikhlé og staðan var svo orðin 2-0 eftir tíu mínútur í seinni hálfleik.
,,Chelsea er eitt besta lið heims með frábæra leikmenn. Við erum ungt lið á meðan þeir eru með leikmenn sem hafa spilað í 12 til 14 úrslitaleikjum," sagði Pochettino.
,,Fyrir marga af okkar leikmönnum var þetta fyrsti úrslitaleikurinn þeirra, svo við erum stoltir. Ég er svekktur fyrir hönd stuðningsmannanna, en við gáfum allt í þetta."
,,Það er erfitt að kyngja þessu en við verðum að horfa fram á veginn. Þetta er fyrsta skrefið fyrir þennan hóp."
Athugasemdir