Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 02. mars 2015 11:00
Magnús Már Einarsson
Rooney hefur trú á að Di Maria komist í gang
Di Maria er með 3 mörk í 19 leikjum í úrvalsdeildinni.
Di Maria er með 3 mörk í 19 leikjum í úrvalsdeildinni.
Mynd: Getty Images
Wayne Rooney hefur trú á því að Angel Di Maria komist í gang á næstunni.

Eftir fína byrjun á Old Trafford þá hefur lítið verið að frétta hjá Di Maria að undanförnu en Argentínumaðurinn var til að mynda tekinn út af í hálfleik gegn Sunderland um helgina.

,,Hann er frábær leikmaður. Þú missir ekki hæfileika þína á einni nóttu. Ég held að hann muni finna út úr þessu," sagði Rooney.

,,Vonandi getur hann aftur náð sínu besta fram og byrjað að standa sig frábærlega."

,,Ég er viss um að hann á eftir að verða mikilvægur leikmaður fyrir okkur frá og með núna og þar til í lok tímabilsins."

Athugasemdir
banner
banner