Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 02. mars 2015 08:00
Alexander Freyr Tamimi
Smápening hent í Diego Costa í gær - Setti hann inn á sig
Diego Costa tekur hér á móti smápeningnum.
Diego Costa tekur hér á móti smápeningnum.
Mynd: Getty Images
Diego Costa, framherji Chelsea, skoraði annað af mörkum liðsins í 2-0 sigrinum gegn Tottenham í enska deildabikarnum í gær, þó markið hafi að vísu verið skráð sem sjálfsmark hjá Kyle Walker.

Brasilíumaðurinn, sem spilar fyrir landslið Spánar, er ansi óvinsæll meðal stuðningsmanna margra annarra knattspyrnufélaga vegna hegðunar sinnar innan valla. Þykir hann oft á tíðum vera helst til harður í horn að taka.

Einhverjir stuðningsmenn gengu þó allt of langt með að lýsa vanþóknun sinni í garð Costa á Wembley í gær og hentu í hann smápeningi.

Costa, sem þénar margar milljónir króna á dag í laun, virtist þó vera ánægður með þjórféð og stakk smápeningnum bara inn á sig og hélt áfram sínum leik.
Athugasemdir
banner
banner