Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
Pétur: Allt öðruvísi en gegn Víkingum
Fyrirliðinn ánægður með fyrsta sigurinn - „Þvílíkur bónus að koma marki inn í lokin"
   fös 02. mars 2018 20:00
Ingólfur Stefánsson
Freyr: Sama hvernig frammistaðan var þá læra þær mikið af þessu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslenska kvennalandsliðið þurfti að sætta sig við tap gegn Japan á Algarve Cup fyrr í dag. Freyr Alexandersson þjálfari liðsins var ósáttur með úrslitin en segist taka helling úr leiknum.

„Við vorum með mikið breytt lið og mikið af ungum leikmönnum sem fengu stórt hlutverk og þær munu taka þennan leik með sér í reynslubankann. Sama hvernig frammistaða þeirra var þá geta þær lært mikið af þessum leik."

„Þetta var bæði jákvætt og neikvætt. Við vorum í vandræðum í fyrri hálfleik. Svo var frábær seinni hálfleikur, við tókum okkur á, leikmenn fóru úr skelinni, hristu af sér slenið og keyrðu bara á þetta."


Japanir leiddu 1-0 í hálfleik en Glódís Perla Viggósdóttir jafnaði metinn fyrir Ísland á 75. mínútu. Japanir skoruðu svo sigurmarkið eftir hornspyrnu undir lok leiksins.

„Það er náttúrulega leiðinlegt að tapa. Fengum á okkur mark eftir horn á síðustu mínútunum sem á bara ekki að gerast. En við lærum af þessu."

Fanndís Friðriksdóttir hefur ekkert spilað í fyrstu tveimur leikjum liðsins á mótinu en Freyr á von á því að hún verði klár í leikinn gegn Hollandi.

„Það eru jákvæðar fréttir af Fanndísi. Hún er á batavegi og við reiknum með því að hún geti tekið þátt í leiknum gegn Hollandi á mánudaginn."

Athugasemdir
banner
banner