Esbjerg 0 - 2 Odense
0-1 Anders Jacobsen ('19)
0-2 Ari Freyr Skúlason ('93)
0-1 Anders Jacobsen ('19)
0-2 Ari Freyr Skúlason ('93)
Ari Freyr Skúlason og Hallgrímur Jónasson léku allan leikinn í varnarlínu OB sem hafði betur gegn Esbjerg í dönsku efstu deildinni.
Anders Jacobsen kom gestunum frá Óðinsvé yfir í fyrri hálfleik og innsiglaði Ari Freyr sigurinn á lokamínútum uppbótartímans.
OB er um miðja deild eftir sigurinn, sex stigum frá evrópudeildarsæti.
Þá lék Hannes Þór Haraldsson allan leikinn fyrir Bodö/Glimt sem tapaði 2-0 fyrir Sarpsborg í norsku efstu deildinni. Hannes og félagar eru búnir að tapa fimm leikjum í röð og eru með sjö stig eftir átta umferðir.
Athugasemdir