Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 02. maí 2016 05:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
England í dag - Tottenham verður að vinna Chelsea
Leicester verður meistari ef Tottenham vinnur ekki Chelsea
Ekkert annað en sigur dugir Tottenham í dag
Ekkert annað en sigur dugir Tottenham í dag
Mynd: Getty Images
Leikur dagsins:
19:00 Chelsea - Tottenham (Stöð 2 Sport 2)

Það er svakalegur mánudagsleikur í enska boltanum í dag, en hann fer fram á Stamford Bridge.

Þar taka heimamenn í Chelsea á móti nágrönnum sínum í Tottenham, en Tottenham hefur spilað gríðarlega vel á þessu tímabili og eru í öðru sæti.

Tottenham er átta stigum á eftir toppliði Leicester, en Tottenham á eftir þrjá leiki og Leicester tvo.

Þess vegna dugir ekkert annað en sigur fyrir Tottenham í dag, en ef Tottenham mistekst að vinna þá verður Leicester meistari. Chelsea er í tíunda sæti með 47 stig.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner