Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 02. maí 2016 19:09
Arnar Daði Arnarsson
Fannar framlengir við KA
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Markvörðurinn, Fannar Hafsteinsson hefur framlengt samning sinn við KA til næstu þriggja ára. Þetta var tilkynnt á heimasíðu KA í dag.

Fannar er uppalinn í KA og hefur leikið með öllum yngri flokkum KA. Hann er fæddur árið 1995 og spilaði fyrsta leikinn sinn aðeins 17 ára gamall fyrir KA.

Hann hefur einnig leikið 19 leiki fyrir yngri landslið Íslands. Auk þess lék hann um tíma á láni í Noregi.

KA tekur á móti Fram í 1. umferð Inkassi-deildarinnar næstkomandi laugardag. Hefst sá leikur klukkan 16:00.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner