Það stefnir allt í að portúgalska stórstirnið Cristiano Ronaldo verði klárt í slaginn á miðvikudaginn þegar Real Madrid tekur á móti Manchester City í seinni viðureign liðanna í undanúrslitum Meistaradeildarinnar.
Markalaust jafntefli var niðurstaðan í fyrri leiknum í Manchester en Ronaldo var þá fjarri góðu gamni vegna meiðsla.
Markalaust jafntefli var niðurstaðan í fyrri leiknum í Manchester en Ronaldo var þá fjarri góðu gamni vegna meiðsla.
Stöðugur fréttaflutningur hefur verið af því hvort Ronaldo verði með á miðvikudaginn en hann snéri aftur til æfinga í gær og gat klárað æfinguna í morgun.
Hér að neðan má sjá myndband af Ronaldo á æfingunni í morgun.
Athugasemdir