U17 landslið karla vann í dag, mánudag, 2-0 sigur á Finnum í undirbúningsmóti UEFA, en mótið fer fram í Finnlandi. Birkir Heimisson og Ísak Ólafsson skoruðu mörkin en bæði komu eftir hornspyrnu.
Auk Íslands og Finnlands taka Svíþjóð og Rússland þátt, en síðarnefndu þjóðirnar gerði 1-1 jafntefli fyrr í dag.
Þessi úrslit þýða að Ísland mun hafna í efsta sæti mótsins burtséð frá úrslitum leikja í lokaumferðinni á miðvikudag, þar sem Finnar eru með 3 stig, en Rússar og Svíar eitt stig, og einungis Finnar geta náð Íslandi að stigum.
Þar standa Íslendingar þó betur að vígi vegna innbyrðis viðureignarinnar í dag.
Um helgina vann íslenska liðið sigur á Svíum og er því með 6 stig.
Athugasemdir