Veigar Páll Gunnarsson var hetja Stjörnunnar sem vann 2-0 sigur gegn Fylki í fyrstu umferð Pepsi-deildarinnar. Veigar byrjaði á bekknum eins og fleiri öflugir Stjörnumenn en kom inn á og skoraði bæði mörk Garðbæinga.
Lestu um leikinn: Stjarnan 2 - 0 Fylkir
„Það er hrikalega mikilvægt að byrja mótið á sigri. Það var smá stress í mönnum held ég. Pressan var aðeins meiri á okkur en mér fannst við komast ágætlega úr þessum leik. Við vorum betra liðið allan leikinn," segir Veigar.
Hann viðurkennir að það verði erfitt fyrir Rúnar Pál þjálfara að halda öllum góðum með þetta breiðan leikmannahóp.
„Það er auðvelt að detta í pirring þegar maður er á bekknum en við erum með svo fáránlega sterkan hóp að það er ekkert sjálfgefið að vera í þessu byrjunarliði. Þá er bara að halda sér á tánum frekar en að detta í einhvern fýlupakka eða pirring og nýta tækifærin."
Viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir