Kóngarnir 5 - 4 Vatnaliljur
Mörk Kónganna: Birgir Örn Pálmason 3, Ingimar Daði Ómarsson, Hjálmar Örn Bjarkason.
Mörk Kónganna: Birgir Örn Pálmason 3, Ingimar Daði Ómarsson, Hjálmar Örn Bjarkason.
4. deild karla fer senn að hefjast og eru lið deildarinnar í óðaönn að undirbúa sig fyrir átökin sem svo sannarlega verða.
Um síðustu helgi unnu Kóngarnir sigur á Vatnaliljum í fjörugum leik.
Kóngarnir fengu eitt stig í 4. deildinni í fyrra og enduðu með þá skrautlegu marktölu 12:116. Þeir töpuðu einnig á dögunum 18-2 fyrir Vestra í Mjólkurbikarnum.
Kóngarnir unnu hins vegar sjaldgæfan sigur um helgina síðustu í æfingaleik gegn Vatnaliljum, sem einnig um munu leika í 4. deild í sumar. Kóngarnir lentu 1-0 undir í leiknum en komust í 4-2 og unnu að lokum flottan 5-4 sigur.
Kóngarnir hafa bætt við sig nýjum leikmönnum og ætla sér að gera betur í sumar en í fyrra.
Keppni í 4. deildinni hefst um miðjan maí. Kóngarnir eru í C-riðli og Vatnaliljur í D-riðlinum.
Það var einnig æfingaleikur í gær þar sem Ægir úr 3. deild hafði betur gegn Stál-úlfi úr 4. deild í hörkuleik.
Ægir 3-2 Stál-úlfur
0-1 Ruben Filipe
0-2 Nemanja Pjevic
1-2 Andri Björn Sigurðsson
2-2 Markaskorara vantar
3-2 Markaskorara vantar



