Davíð Örn Atlason átti flottan leik þegar Víkingur beið lægri hlut gegn FC Koper í Evrópudeildinni í kvöld.
Gestirnir unnu góðan sigur í Víkinni þökk sé gullfallegu marki í seinni hálfleik, en heimamenn voru að spila flottan bolta á köflum. Hins vegar vantaði sem fyrr herslumuninn.
Gestirnir unnu góðan sigur í Víkinni þökk sé gullfallegu marki í seinni hálfleik, en heimamenn voru að spila flottan bolta á köflum. Hins vegar vantaði sem fyrr herslumuninn.
Lestu um leikinn: Víkingur R. 0 - 1 FC Koper
„Ég er bara mjög, mjög svekktur. Mér fannst við spila vel í dag og áttum skilið meira, en það sem verður okkur að falli er bara færanýtingin. Þetta er svolítið búið að vera sagan okkar í sumar, við spilum ágætlega en svo erum við ekki beittir fram á við og náum ekki að klára færin, erum ekki mættir á réttu svæðin og svo er okkur refsað fyrir það,“ sagði Davíð.
„Þetta er mjög svekkjandi. Þeir ógnuðu okkur þannig séð ekki mikið í leiknum. Það var mjög leiðinlegt að sjá boltann í netinu en það er bara hálfleikur í einvíginu og við ætlum okkur meiri hluti í Slóveníu.“
Athugasemdir