„Mér finnst þetta vera sanngjarnt en ég veit ekki hvort ég er sáttur. Ég var ósáttur við að hefðum ekki náð að halda út í hálfleik.“ Sagði Ejub Purisevic þegar hann var spurður að því hvort hann væri sáttur með stig eftir 1-1 jafntefli við KA á útivelli í kvöld
Lestu um leikinn: KA 1 - 1 Víkingur Ó.
„Mér fannst að eftir við skoruðum markið að við urðum of varkárir og það var eins og við vorum að bíða eftir hálfleiknum. Mér finnst við vera að gefa þeim allt of mikið, þannig að þeir ná að skapa pressu og mark.“
Ejub tók Wiliam da Silva útaf en hann hafði verið mjög góður áður en hann fór útaf. Aðspruður um skiptinguna sagði Ejub: „Hann var að kvarta aðeins yfir meiðslum og ég tók hann út og Brynjar kom inná og stóð sig bara ágætlega finnst mér“
Nánar er rætt við Ejub í spilaranum fyrir ofan
Athugasemdir