Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fim 02. júlí 2015 01:00
Elvar Geir Magnússon
HM kvenna: Japan í úrslit - Sjáðu sjálfsmarkið ótrúlega
Laura Bassett.
Laura Bassett.
Mynd: Getty Images
Japan 2 - 1 England
1-0 Aya Miyama (víti '33)
1-1 Fara Williams (víti '40)
2-1 Laura Bassett sjálfsmark ('90+)

Englandi mistókst að komast í fyrsta sinn í úrslitaleik HM kvenna þegar liðið tapaði fyrir ríkjandi meisturum í Japan í undanúrslitaleik í Edmonton í kvöld.

Bæði lið fengu umdeildar vítaspyrnur í fyrri hálfleik og staðan 1-1 þegar flautað var til leikhlés.

Enska liðið var mun betra í seinni hálfleik án þess að ná að skora og í uppbótartíma, þegar allt stefndi í framlengingu, varð Laura Bassett, varnarmaður Englands, fyrir því óláni að skora sjálfsmark. Hreint ótrúlegt mark sem réði úrslitum en það má sjá hér fyrir neðan.

Japan mætir Bandaríkjunum í úrslitum um komandi helgi.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner