Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   fim 02. júlí 2015 22:30
Ívan Guðjón Baldursson
Nani fer í læknisskoðun hjá Fenerbahce á sunnudaginn
Mynd: Getty Images
Tyrknesku toppliðin eru heldur betur byrjuð að styrkja sig og virðast þau vera mikið fyrir að fá leikmenn úr ensku úrvalsdeildinni til sín.

Lukas Podolski er á leið frá Arsenal til Galatasaray og Nani á leið frá Manchester United til Fenerbahce.

Búið er að staðfesta að Nani fer í læknisskoðun hjá tyrkneska félaginu á sunnudaginn en kaupverðið hefur ekki verið tilgreint, en er talið nema um 4 milljónum punda.

Nani hefur verið leikmaður Man Utd síðan 2007 en var lánaður til Sporting CP á síðasta tímabili. Hjá Sporting gerði Nani 7 mörk í 27 deildarleikjum og á kantmaðurinn 147 leiki að baki fyrir Man Utd og 86 fyrir portúgalska landsliðið.
Athugasemdir
banner
banner