Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
   fim 02. júlí 2015 21:42
Alexander Freyr Tamimi
Óli Þórðar: Vantar gredduna í teignum
Óli Þórðar var svekktur.
Óli Þórðar var svekktur.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ólafur Þórðarson, þjálfari Víkings, var eðlilega svekktur eftir 1-0 tap sinna manna gegn FC Koper í Evrópudeildinni í kvöld.

Enn og aftur skorti Víkinga herslumuninn fram á við, en mark Koper kom eftir sannkallað þrumuskot þar sem boltinn söng í netinu.

Lestu um leikinn: Víkingur R. 0 -  1 FC Koper

„Við þurfum að gefa aðeins meira í sókninni ef við ætlum að fá eitthvað úr leiknum, það er nú bara þannig. Við erum of mikið að bíða eftir að einhver annar taki af skarið eða boltinn komi til okkar. Það vantar bara meiri greddu í teignum,“ sagði Ólafur.

„Það var margt gott í þessum leik, en hins vegar kom í ljós að við erum þunnir þarna frammi, það er bara þannig. Við reynum bara að bæta þau göt sem við getum, en það er alveg ljóst að það verður mjög þungur róður úti.“

„En þetta er bara eitt mark, ef við komum inn einu marki erum við í séns. En mér finnst við þurfa að vera graðari í teignum ef við ætlumst til þess að fá mörk.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner