Andri Rúnar Bjarnason, leikmaður Grindavíkur og markahæsti leikmaður Pepsi-deild karla, lét heldur betur heyra í sér á Twitter í kvöld. Hann skaut þar á Söndru Maríu Jessen, sóknarmann Þórs/KA.
Sandra setti "læk" á tíst þar sem sú ákvörðun að hafa Bryndísi Láru Hrafnkelsdóttur, markvörð Þór/KA, ekki í landsliðinu er gagnrýnd. Í tístinu er gefið í skyn að það sé fáránlegt að hafa Sonný Láru Þráinsdóttur, markvörð Breiðabliks, í landsliðinu í stað Bryndísar.

Andri Rúnar var ekki hrifinn af þessu hjá Söndru og skaut á hana í kjölfarið. Hann kallar hana m.a. heilalausa þar sem hún er sjálf í landsliðshópnum með Sonný Láru.
„Frábært hjá @sandrajessen7 að læka þetta tweet... Verandi sjálf í hópnum með Sonný #heilalaus," skrifaði Andri Rúnar.
Sandra María tók eftir þessu tísti hjá Andra og svaraði honum.
„Báðir frábærir markmenn sem eiga skilið að vera í hópnum. Ætla ekki að taka neitt af Sonný," sagði hún.
Það verður athyglisvert að sjá hvort þetta tíst hjá Andra Rúnari dragi einhvern dilk á eftir sér.
Uppfært 20:40:
Ég fór yfir strikið með hashtaginu. Biðst afsökunar á því.
— Andri Bjarnason (@Andrirunar) July 2, 2017
Sjá einnig:
Bryndís Lára: Þarf tvöfaldan Kastljósþátt til að ræða landsliðsvalið
Athugasemdir