Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   sun 02. ágúst 2015 10:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heimild: FI 
Zlatan: Mögulega minn síðasti leikur fyrir PSG
Zlatan Ibrahimovic
Zlatan Ibrahimovic
Mynd: Getty Images
Zlatan Ibrahimovic sagði við fjölmiðla eftir sigur PSG á Lyon í franska ofurbikarnum, að hann væri mögulega búinn að leika sinn síðasta leik hjá félaginu

Það hafa verið orðrómar um Ibrahimovic í sumar og spurning hvað mun gerast núna.

"Þetta gæti hafa verið minn síðasti leikur fyrir PSG. Ég er að fara taka mikilvæga ákvörðun," sagði Ibrahimovic.

Hans fyrrum félag, AC Milan, er talið líklegasti áfangastaðurinn en félagið sjálft hefur mikinn áhuga á því að fá Zlatan aftur til félagsins.

Zlatan hefur einnig verið orðaður við Roma, Manchester United, Galatasaray, Fenerbahce og lið í MLS-deildinni.
Athugasemdir
banner
banner