Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 02. ágúst 2015 07:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heimild: Goal 
Martinez: Lukaku verður heill fyrir fyrsta leik
Roberto Martinez og Romelu Lukaku
Roberto Martinez og Romelu Lukaku
Mynd: Getty Images
Roberto Martinez, stjóri Everton, er þess fullviss að Romelu Lukaku verði heill fyrir fyrsta leik í ensku úrvalsdeildinni, þrátt fyrir að hafa meiðst aftan á læri á undirbúningstímabilinu.

Lukaku, sem hefur skorað fjögur mörk í fimm leikjum á undirbúningstímabilinu, haltraði útaf í æfingaleik á móti Dundee United.

Everton á æfingaleik í dag á móti Villareal og Martinez vill ekki taka neinar áhættur með Lukaku.

"Við munum meta stöðu hans fyrir leikinn," sagði Martinez.

"Ég efast um það að við munum taka einhverjar áhættur með hann í dag."

"Ég mun ekki taka neinar áhættur með hann í æfingaleik en Rom verður heill fyrir opnunarleik tímabilsins gegn Watford."
Athugasemdir
banner
banner
banner