sun 02. ágúst 2015 20:30
Jóhann Ingi Hafþórsson
Ray Parlour: Benzema yrði frábær fyrir Arsenal
Ray Parlour í leik með Arsenal.
Ray Parlour í leik með Arsenal.
Mynd: Getty Images
Karim Benzema væri frábær hjá Arsenal, þetta segir fyrrverandi leikmaður liðsins Ray Parlour.

Benzema hefur verið orðaður við Arsenal og talið er að Frakkinn sé opinn fyrir því að færa sig um set.

Hlutirnir hafa hins vegar gengið hægt fyrir sig en talið er að formenn Arsenal séu ánægðir með að bíða þar til tækifæri gefst til að fá sóknarmanninn.

Parlour segir að hinn 27 ára gamli Benzema yrði frábær hjá Arsenal en liðið hefur aðeins fengið Petr Cech til sín í félagsskipta glugganum.

„Benzema yrði frábær hjá Arsenal. Stuðningsmennirnir yrðu mjög spenntir að sjá hann í hópnum.

„Hann er með mikla reynslu með landsliðinu, ef hann er laus, hver veit? Eitthvað gæti gerst," sagði Parlour.
Athugasemdir
banner
banner
banner