Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   sun 02. ágúst 2015 21:00
Jóhann Ingi Hafþórsson
Rooney ánægður með móttökurnar frá stuðningsmönnum Everton
Wayne Rooney í leiknum í dag.
Wayne Rooney í leiknum í dag.
Mynd: Getty Images
Wayne Rooney var ánægður með mótökurnar sem hann fékk frá stuðningsmönnum Everton er hann spilaði með liðinu í leik gegn Villarreal í dag.

Leikið var í tilefni Duncan Ferguson sem var frábær með Everton á árum áður. Rooney klæddist Everton treyjunni í fyrsta skipti í 11 ár en hann kom úr akademíu liðsins.

Ég var mjög glaður að fá þessar móttökur, ég vissi ekki við hverju ég átti að búast en það er frábært að börnin mín fengu að sjá mig í Everton treyju. Það var mikið um góðar minningar."

„Það var gaman að spila nokkar mínútur með Duncan," sagði Rooney.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner