Dieter Hecking, þjálfari Wolfsburg var ánægður með hvernig leikmenn sínir stóðu sig gegn Bayern Munchen eftir að hafa lent undir í þýska ofurbikarnum um helgina.
„Við sáum frábæran leik, sérstaklega á þessu stigi tímabilsins, það var mikill hraði í leiknum."
„Bayern byrjaði betur og það kom okkur á óvart. Vieirinha þurfti smá tíma til að læra á Douglas Costa og við hefðum getað lent undir snemma."
„En eftir korter komumst við inn í leikinn og áttum fyrstu hættulegu færin. Bayern eru hins vegar hættulegir og komust yfir en ég er mjög glaður með hvernig við svöruðum því," sagði Hecking.
Athugasemdir