Ensk lið voru í sviðsljósinu í dag í undirbúningi fyrir deildina sem hefst eftir viku.
Southampton gerði 1-1 jafntefli gegn Espanyol þar sem Jay Rodriguez jafnaði leikinn eftir að Salva Sevilla hafði komið spænska liðinu yfir.
West Ham tapaði fyrir Werder Bremen, 2-1 þar sem mark Diafra Sakho dugði ekki til þar sem Anthony Ujah skoraði tvíveigis fyrir þýska liðið.
Liverpool vann síðan Swindown Town, 2-1 en þar skoraði Christian Benteke sitt fyrsta mark fyrir Liverpool með fallegu skoti. Jonathan Obika jafnaði fyrir Swindon áður en Sheyi Ojo skoraði sigurmark Liverpool undir lokin.
Athugasemdir