Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 02. ágúst 2015 18:31
Jóhann Ingi Hafþórsson
West Ham ætlar að bæta við sig sóknarmanni
Enner Valencia í baráttunni við Gary Cahill.
Enner Valencia í baráttunni við Gary Cahill.
Mynd: Getty Images
West Ham ætlar að fá sér sóknarmann en þetta segir David Gold, stjórnarformaður liðsins.

„Við misstum Enner Valencia í meiðsli svo við verðum að fá annan sóknarmann og við munum gera allt til þess að fá réttan leikmann."

Valencia verður lengi frá vegna meiðsla sem hann varð fyrir í evrópuleik liðsins gegn Astra Giurgiu frá Rúmeníu.

„Við erum að bíða eftir að sjá nákvæmlega hvað er að en þetta lítur ekki vel út," sagði Gold.
Athugasemdir
banner
banner