Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 02. september 2014 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Brasilíska ungstirnið Doria til Marseille (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Doria er 19 ára gamall brasilískur varnarmaður sem var að skrifa undir samning við franska stórliðið Olympique de Marseille.

Doria hefur verið orðaður við ýmis evrópsk félög í sumar en Marseille vann kapphlaupið og þarf að greiða 10 milljónir evra fyrir ungstirnið.

,,Ég er mjög ánægður og stoltur með að ganga til liðs við Marseille," sagði Doria við vefsíðu félagsins.

,,Þetta er eitt af stærri félögum Evrópu og er vel þekkt í Brasilíu."

Doria á yfir 60 leiki að baki fyrir Botafogo í Brasilíu þrátt fyrir ungan aldur. Hann hefur þá einnig leikið einu sinni fyrir A-landslið Brasilíu.
Athugasemdir
banner
banner
banner