Strákarnir í U21 verða í eldlínunni á miðvikudaginn þegar þeir taka á móti Armenum á Fylkisvelli og hefst leikurinn kl. 16:30. Liðið heldur svo til Frakklands að leik lokum en leikið verður gegn heimamönnum, mánudaginn 8. september.
Íslenska liðið er í öðru sæti riðilsins en það sæti getur gefið réttinn til að leika í umspili fyrir úrslitakeppni EM 2015. Frakkar hafa þegar tryggt sér efsta sæti riðilsins en Armenar eru með 6 stig eftir sex leiki.
Efsta þjóðin í hverjum riðli kemst í umspilið ásamt þeim fjórum þjóðum sem eru með bestan árangur af liðunum í öðru sæti riðlanna tíu.
„Það er númer eitt, tvö og þrjú að ná þremur stigum gegn Armenum. Við þurfum að vera áfram þéttir varnarlega og öflugir fram á við með marga góða leikmenn. Það er mikið sjálfstraust í hópnum og gríðarlega gaman að vera með strákunum," sagði Guðmundur Þórarinsson, lykilmaður í liðinu, við Fótbolta.net eftir æfingu í gær.
Guðmundur spilar fyrir Sarpsborg í Noregi en hann hefur verið orðaður við Nordsjælland í Danmörku, liðið sem Ólafur Kristjánsson þjálfar.
„Ég er í Sarpsborg og einbeiti mér að því. Maður stefnir auðvitað lengra og það er gaman að vera orðaður við flotta klúbba," sagði Guðmundur en viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir