Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 02. september 2014 15:07
Magnús Már Einarsson
Tom Cleverley til Aston Villa (Staðfest)
Mun Cleverley láta ljós sitt skína á Villa Park?
Mun Cleverley láta ljós sitt skína á Villa Park?
Mynd: Getty Images
Aston Villa hefur fengið miðjumanninn Tom Cleverley á láni frá Manchester United.

Lánssamningurinn gildir út tímabilið en enska úrvalsdeildin hefur staðfest að félagaskiptin hafi náð að ganga í gegn á tilsettum tíma áður en félagaskiptaglugginn lokaði.

Manchester United hafði fyrr í vikunni samþykkt átta milljóna punda tilboð frá Aston Villa í Cleverley en nú er ljóst að leikmaðurinn fer á láni.

Í gærkvöldi virtist Cleverley vera á leið til Everton en ekkert varð af samningum þar.

Cleverley er ekki ofarlega í röðinni hjá Manchester United en flestir stuðningsmenn liðsins gráta það lítið að sjá hann hverfa á braut.
Athugasemdir
banner
banner