Rétt áður en félagaskiptaglugganum var lokað náði Manchester United að krækja í sóknarmanninn Radamel Falcao frá Monaco.
„Ég er hæstánægður með að Radamel hafi gengið í raðir okkar á láni á þessu tímabili. Hann er einn skilvirkasti markaskorari boltans í dag," segir Louis van Gaal, stjóri Manchester United.
„Ég er hæstánægður með að Radamel hafi gengið í raðir okkar á láni á þessu tímabili. Hann er einn skilvirkasti markaskorari boltans í dag," segir Louis van Gaal, stjóri Manchester United.
„Tölfræði hans talar sínu máli, mörk skoruð miðað við fjölda leikja. Þegar leikmaður í þessum gæðaflokki er laus þá er það tækifæri sem verður að grípa."
Athugasemdir