David De Gea er löglegur með Man Utd í Meistaradeild Evrópu í vetur þar sem hann er einn af þeim 25 leikmönnum sem Louis van Gaal valdi í hóp sinn.
Victor Valdes virðist hins vegar enn vera út í kuldanum á Old Trafford þar sem hann er ekki í hópnum en hann yfirgaf ekki félagið áður en félagaskiptaglugginn lokaði.
Að öðru leyti er fátt óvænt í hópnum en Anthony Martial er að sjálfsögðu í hópnum ásamt ungstirninu Andreas Pereira.
Hér fyrir neðan má sjá hópinn í heild sinni.
Markmenn:David de Gea, Sergio Romero, Sam Johnstone
Varnarmenn:Phil Jones, Marcos Rojo, Chris Smalling, Luke Shaw, Guillermo Varela, Paddy McNair, Matteo Darmian
Miðjumenn:Michael Carrick, Daley Blind, Ashley Young, Ander Herrera, Nick Powell, Antonio Valencia, Marouane Fellaini, Morgan Schneiderlin, Bastian Schweinsteiger, Jesse Lingard, Andreas Pereira
Sóknarmenn:Memphis Depay, Juan Mata, Anthony Martial, Wayne Rooney, James Wilson
Athugasemdir