Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   mið 02. september 2015 22:30
Arnar Geir Halldórsson
Marotta: Fengum tilboð í Pogba
Mikilvægur
Mikilvægur
Mynd: Getty Images
Giuseppe Marotta, yfirmaður leikmannamála hjá Juventus, segir að félaginu hafi borist stór tilboð í Paul Pogba í sumar.

„Við viljum vinna allar keppnir og þessvegna viljum við halda mikilvægum leikmönnum eins og Pogba".

„Við fengum stór tilboð frá mjög stórum félögum en því var öllu hafnað",
sagði Marotta.

Pogba var reglulega orðaður við Man City, Chelsea og Real Madrid en þessi 22 ára miðjumaður verður áfram í herbúðum Juventus.

Ítalska stórliðið missti engu að síður tvo mjög mikilvæga leikmenn af miðsvæðinu í sumar, Andrea Pirlo fór til New York City og Arturo Vidal til Bayern Munchen.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner